21.06.2007 18:36:12 / svanhvít

:)

já langt ´siðan að maður henti einhverja hingað inn. Einhvernvegin held ég líka að það séu fáir sem nenna að lesa þetta. :p Margt búið að gerast síðan 23 mai...:)
Ég fór til dæmis til ´Spánar 31 mai með Klöru og fjölskyldunni minni til Aligante eða aðeins frá í sumarhúsið okkar :). Ótrúlega mikið tjillað og haft það nice! Það verður aftur á móti tekið á þvi í Tyrklandi eftir sirka mánuð!!!;D Ótrúlega er maður orðinn spenntur fyrir því...

Ég skellti mér síðan í sumarskóla í spænsku og jarðfræði... gafst reyndar upp á þessari spænsku en fer að vera búin í jarðfræði. Ekkert smá spennt að verða búin, finnst ekkert spennandi að vera í skóla svona á sumrin:)
Síðan er bara útilega fyrstu helgina í júli, veit einhvert hvert er hægt að fara? einhver smá skemmtun t.d. sveitaball:D en ekki þar sem grasið sést ekki fyrir smákrökkum sem eru að detta í það!

Ég var síðan að eignast ´lítið barn. Lítill og appelsínugulur og syndir í hringi... Getiði nú:P
Ég ákvað að kalla hann Frankenstein en ég var reyndar aðeins ða ruglast á Frankenstein og Einstein saman,,, een það þýðir ekkert að breyta þessu núna hehe

Farin að háma í mig mat

bæbæ ;)
kommentið sambandi við skemmtilegan stað til að fara í útilegu

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 20:05:32 / svanhvít

Ljúfa líf, ljúfa lif lala...........

Rosalega er æðislegt að vera í sumafríi, maður kemur heim úr vinnunni og veit ekkert hvað maður á að gera af sér. ELSKA ÞAð!! ég er semsagt byrjuð að vinna eða spurning hvort það sé hægt að kalla þetta vinnu þar sem þetta er rólegt í auknablikinu!:P Fór semsagt aftur í skólagarðana ásamt Hildi og verðum líklega undir stjórn Birnu vinkonu minnar svo þetta er bar snilld:D
Síðan er bara Spánn eftir viku, er orðin svona svolítiið spennt fyrir því ! ´Liggja á ströndinni og hafa coldplay í eyranu, svoleiðis á lífið að vera
Annars er eg búin að aflita a mér hárið svo það er orðið nokkuð ljóst:P

En þetta verður bara að vera stutt í bili þar sem eg er að fara í smáralind í myndavélakassa ( man aldrei hvað þetta heitir) því eg er að fara að endurnýja ökuskirteinið. Fór semsagt í ökumat í dag og var ökukennarinn hæstánægður með mig, enda fyrimyndar ökumaður á ferðinni!:D

 en bless á meðan

 koma síðan myndir vonandi í kvöld frá afmælinu minu sem eg helt upp á miðvkudaginn, ég bauð semsagt stelpunum mínum í dinner og svona. Ótrúlega gaman. takk fyrir mig aftur stelpur!:D Búin að kaupa mer G-star buxur fyrir peninginn síðan ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 19:01:56 / svanhvít

SUMARFRÍ

VÁ hvað þessi tilfinning er unaðsleg, ég finn sælutilfinnunga streyma um líkamann..... Nei þeir sem hugsa perralega hættið því !8) þessi góða tilfinning er vegna þess að ég þarf ekki að liggja í bókunum lengur. Ástæðan er fyrir því að eg er komin í sumarfrí!!! Búin að bíða lengi eftir´því. En aftur á móti er mer ekkert búið að ganga alltof vel í blessuðu prófunum en ásættanlegt þó. :) ´Búin að fá úr 4 einkunnir og á tvær eftir sem eiga líklega ekkert eftir að vera svaka, en allt svoleiðis verður bara að koma í ljós.

Annars í dag er maður bara búinn að vera að njóta frísins, fór í kringluna og smáralind og keytpi mer  kjól eða svona kjól yfir leggings, ótrulega lekkert:P. Síðan þegar ég kom heim þá var bílinn minn allur glansandi og flottur. þá hafði Siggi verið búinn að dúnda sér við hann í 4-5 tíma, litla krútt ;)

 Annars er maður orðinn spenntur fyrir morgundeginum!:D Fara að skemmta ser og ekkert bíður manns daginn eftir SWEET :D

EN farin í ljós, maður kemur alltaf illa út úr þessum prófum haha ;)

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 12:46:57 / svanhvít

Tileinkað tom og co

Jæja hlustar maður ekki alltaf á þau Tom, Katie og Suri, fyrst þau eru svona miklir aðdáendur.
Annars er lítiið að frétta hér á bæ þannig séð. Er búin að vera mikið í Tjarnabío og þar á milli að koma mér niður í kjallara. Já þið lásuð rétt Svanhvít er loksins að fara niður eftri LANGA bið!

Íbúðin er öll að verða fín, búið að mála hana alla. Pabbi minn búinn að eyða öllum sínum frítíma þarna niðri að gera íbúðina fína og er búinn að mála hana alla og skipta um ofna. Ég bauðst til að halda á gamla ofninum, sá gamli hló svolitið af mér. Kom síðan í ljós að hann var ekki nema 150 kg!:D´Hefði nú lettilega tekið hann 8). Allavega svaf ég mína fyrstu nótt þarna í gær. Svo stelpur þið vitið hvar partýstaðurinn verður síðan:D

Ég var að hugsa hvenær þið kæmust í afmælið mitt, langar soldið að bjóða ykkur heim og elda handa ykkur. Mig langar rosalega að gera það laugardaginn eftir prófin!:) Allir í góðum fíling og svona. Spurning hvenær bústaðaferðin er, veistu það hildur eða Klara? hvort það sé föstudaginn eða laugardaginn?

Allavega kommentið hvort þessi helgar hentar ekki öllum!:D þetta er nánast eini tíminn sem ég get haldið uppá það... því siðan er vinnuhelgi og svo bara Spánn:). Finnst líka bjánalegt að halda uppá afmælið mitt meira en 2 mánuðum seinna. :D

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 01:20:47 / svanhvít

Belive it or not

 

Eftir 2 vikna bið frá Hollywood stjörnum og Fáskrúðsfirði sem er ekkert síðri, hef ég loksins sett inn myndir

þessar myndiru eru frá Árshátíð MK og síðan seintgleymnu bústaðarferð sem við fórum í. úff hvað það var gaman. Ég nenni samt ekki að segja eitthvað frá ferðinni sjálfri þar sem Ösp gerði allsvakalegt langt og flott blogg um hana.

 



  Góð hópmynd

 

 

 Ein góð frá bústaðnum

 

Annars er alveg pottþétt fleira búið að gerast síðan að ég skrifaði síðast, tókum nokkur góð djömm um páskana , var þó mest í rólegheitunum yfir páskana og hafa það kósy.

 í dag er akkurat mánuður þangað til að prófin eru búin, ég bara get ekki beðið. Taka nokkur próf og skella sér síðan til spánar, vonandi:S

En spá í að skella mér í háttinn, er gjörsamlega að leka úr þreytu

bless í bili

» 11 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 19:59:25 / svanhvít

Blogg yeah

Já bloggleysi hér í gangi !:D

Ekkert mikið búið ða gerast kansnki síðan síðast nema það að ég er orðin 19 ára - ekkert unglamb lengur:p Annars finnst mer þetta alveg ótrulega leiðinleg tala að ég segi bara að ég sé 18 ára þangað til að ég verð tvítug :D Gott plan?

Annars var afmælisdagurinn bara æði! á of góða vini og kærasta. Morguninn byrjaði að ég opnaði gjöf frá sigga og náði hann að plata mig tvisvar með henni. Síðan þegar´ég fór út og ætlaði að koma mér í skólann var bílinn minn allur plastaður. Datt mér stelpurnar strax í hug. þá höfðu þær komið kl 7 um morguninn og dundað sér að plastá bílinn minn inn og skrifað 19 ára með tannkremi á hann. Þið eruð fyndnar :DDaginn fyrir afmælisdaginn fór ég í Rokk og Rósir og ætlaði að kaupa kjól sem eg hafði tekið frá. Afgreiðslukonan sagði þá að hún hafði lánað fréttablaðinu kjólinn og myndi hringja i mig þegar hún fengi hann aftur. Seinna um afmælisdaginn þá kíkti ég til sigga og gaf hann mér þá ekki annan pakka og í honum var kjólinn ! :haha: þá hafði stelpurnar verið i þessu með honum! Eruð æði:lol:

Síðan á föstudaginn ´þá var MK að keppa í gettu betur á móti MH. Maður þarf nú varla að segja hver vann því auðvitað var það MK!! Ole ole ole ole 
Maður verður  síðan að fara a úrslitin á föstudaginn og við tökum MR alveg auðveldlega segi ég, enda bráðgáfar strákar í liðinu okkar. Ég er allaveg stoltur MK- ingur get eg sagt ykkur

Dagurinn í dag er búinn að einkennast af mat.! Fór í fermingarveislu til frænku minnar og var ekki svona ofboðslega góður matur þar að ég tróð i mig og fyllti diskinn 3svar! Er maður gráðugur eða hvað!:D Ég átti einmitt 5 ára fermingarafmæli í gær, svakalega er maður orðinn gamall eitthvað :$

 Eftir ferminguna kíkti ég á Audi bílasýningu og váaa hver vill gefa mer Audi TT- ekki nema 6 millur ;)

nice:D

   

 Enda þetta með þessari flottu fermingarmynd sem eg stal af honum Elvari ;) Við áttum semsagt 5 ára fermingarafmæli í gær :D  Allir svo litlir og sætir!:D

 

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 00:58:29 / svanhvít

Blelli

Lítið að frétta hér á bæ síðan síðast því miður. :p en eg vil byrja á að óska Helenu til hamingju með 2 sætið í Ungfrú Vesturland, og núna býð ég spennt að sjá hana í ungfrú Ísland:D

sæta sæta sko! ;)

 Í síðustu viku var ég auk Söndru og Rósu í verklegum líffræði tíma að klippa rætur af plöntum og fleira skemmtilegt og fór að hugsa hvort það sé kannski til önnur tegund  sem er mun öflugari og stærri en við mennirnir. Kannski heil veröld sem við vissum bara ekki að og við værum þá eins og maurabú fyrir þeim. Þegar það er t.d rok þá væri einhver að sveifla höndum  eða rigning þá væri einhver að hella niður í litla heiminn okkar. Já frekar vitlaust jájá´ég veit en skemmtilegt pæling :D

Þó að ég sé ekki alveg að trúa þessari pælingu þá held ég að það sé svo mikið til sem við vitum ekki af. Maður er alltaf að lesa hvað mannfólkið var heimst áður fyrr, til dæmist hélt fólk að jörðin væri flöt svo ég held að margt sem við erum að halda fram sé bara rugl.

Jæja nóg í bili

Lifið heil


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 16:32:29 / svanhvít

Jeh

sæl og blehh

Sit hérna í líffræði tíma og er að fylgjast með öðru auganu.Mér tókst líka að klára ritgerðina mína í sögu eða svona já nánast :D Ótrúlega sátt með það .

Vá hvað ég hef nákvamlega ekkert aðsegja herna en þar sem fók er buið ða byðja mig að blogga þá verðið að þola tómt blogg. Síðan um helgina mín vinnuhelgi. Það ætti heldur ekki verið búið ða fara framhjá neinum þar sem eg er búin að nöldra um ´það´i soldinn tíma. Aðalega vegna þess að stelpurnar eru allar að fara horfa á Helenu sigra ungfrú Vesturland og síðan ball eftir það. Ég nenni bara engan vegin að koma mér heim kl svona 10 eða 11 dagiinn eftir. Ég væri ekkert á móti því samt að sjá hana !! En ég treysti fullkomleg að hún komist í ungfrú Ísland... Klárlega ( guðrun S. ;)) En þetta verður þá bara þvílikt kósy laugardagur hjá mér og ég fæ bara að skemmta mér með mér jejj :D Hlakka strax til

tíminn búinn

adios


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 18:23:03 / svanhvít

leit af skyndihjálparfélaga???:D

Jæja vill einhver vera svo góður og veita mér félagsskap í skyndihjálparnámskeið. Namskeiðið byrjar 5 mars næstkomandi kl 5 til átta og verðu siðan í 4 skipti. þetta gefur manni 1 einingu og kostar reyndar 5.500. en ég meina þú yrðir með mér sem er óendanlega skemmtilegt ;)

kommentið  


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 19:38:42 / svanhvít

újé

Jæja þá er maður loksins kominn með þetta myspace og kominn i þetta serstaka samfélag. Tók sinn tíma að fatta hvernig þetta virkar- finnst þetta ekkert beint einfalt kerfi og hef ég alveg prufað nokkur :lol: Allavega er slóðin myspace.com/svanhvit88.

Síðan í dag ákvað ég nokkurnvegin að klára skólann á þremur og hálfu ári eða reyndar að reyna þetta. Það gæti reynst aðeins erfitt þar sem ég á heilar 29 einingar eftir þessa önn ef allt gengur eins og eg vil. Þarf þá líklega að taka 2 fög í sumarskóla í sumar ... Jíbbi!:D. Allavega skárra en að vera nánast ein eftir síðustu önnina mína þar sem flestar af stelpunum eru að fara að klára þetta á 3 og hálfu ! Eins gott að maður getur þetta!:)

En annars er nánast ekkert að frétta af mér.. bara svona það venjulega- skóli og vinna og fleira svipað athyglisvert.

 

Hef þetta bara svona stutt í bili ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 16:01:37 / svanhvít

Betra er seint en aldrei!

Jæja loksins lét eg eftir og búin að henda þessum helv. myndum inná netið frá afmælinu hennar Hildar:evil:.... :D Ég nenni nú varla að fara að blogga eitthvað serstakt um afmælið þar sem það er svo langt síðan að það var en allavega var alveg ótrulega gaman og vil bara þakka Hildi fyrir gott boð!! oog nátturulega mömmu hennar aka besti kokkur í heimi!!!:D

Ekkert smá nice að hafa verið í vetrafríi í vikunni því núna er bara að koma föstudagur strax aftur á morgun - NICE :!:. Ég var nú bara að slappa af í þessu fríi, þar sem ég var nánast veik og að vinna líka. Er nú ennþá með smá kvef en samt spá í að gera eitthvað á laugardaginn þar sem maður er alveg í fríi frá vinnunni alla helgina:D Það hefur held eg bara aldrei gerst eða allavega langt síðan.

En já svo loksins léum við verða að bústaðarferðinni okkar lángþráðnu. Eruði ekki sammála mér stelpur að það se skemmtilegra að taka bara einn bústað og hafa frekar þröngt í stað að hafa tvö ?

Jæja spá í að fara að hlusta á Ásgrím tala um plöntur og vatn, orðin bara forvitin um þetta  ;)

 
 
 
Svanhvit is out! 


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 20:05:16 / svanhvít

Bannað að lemja mig núna

Já núna mega morðhótanirnar hætta því ég setti loksins þessar myndir á netið ;)

Semsagt myndirnar frá laugardagskvöldinu sem var nátturulega ekkert annað en snilldin ein. Við byrjuðum semsagt hjá Guðrunu Selmu þar sem við vorum þónokkuð margar stelpur samankomnar!:) Síðan var haldið á stað á Ölver og vá hvað það var mikil stemming þar. Við tókum að sjálfsögu þátt í karokí.

Stelpurnar toppuðu kvöldið með því að syngja í allavega 2 mínútur með slökkt á mígrafóninum og kom þessi myndarlegi gæi sem eg missti þó af upp á svið og benti þeim á það

 


 

 

 

hér er einmitt mjög góð mynd af þeim atburði, sýnist guðrun selma vera að springa úr hlátri!:D

 


 

Held síðan að Egill hafi komið upp á svið að stela senunni frá stelpunum og Rósa var nú ekki sátt með það ;)

 

Síðan enduðum við Hverfisbarnum og var svona alveg skítsæmilegt þar fyrir utan nokkur vesen en ég meina svoleiðis gerist bara :$

 

Síðan er Hildur svo gestrisin og ætlar að bjóða okkur í afmælisteiti til hennar á morgun! og ´ég er að deyja úr spenningi og ég efa ekki að við toppum þetta kvöld ;)

 

Ég skellti síðan myndbandinu af Söndru að spila á skeiðar fyrir janúarballið endilega kíkið a það!:D það tók frekar langan tíma að læra að setja þetta á netið :D 

 

 

 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 17:24:02 / svanhvít

Föstudagur!:D

Jæja þá er loksins kominn föstudagur! Fannst hann vera komin á miðvikudaginn svo hann er langþráður!:D

Samt verður nú ekkert svaka skemmtilegt þessa helgi líklega, þarf að vinna á laugardeginum og síðan fer nánast allur sunnudagurinn í lærdóm sem er nátturulega ekkert annað en rugl :S

Annars bjargar Guðrun Selma þessu með stelpuhitting á Laugardeginum og eftir það mun leið okkar halda á Ölver í karokí! Loksins er komið að þessu stelpur! Hversu lengi höfum við ætlað að láta verða að þessu, Guðrun er allavega búin að vera spennt í svona ár!:) Svo við verðum allar að syngja hástöfum og munum þá líklega bara enda þarna einar! ;)

Jája´annars hef eg ekkert meir að segja eiginlega, var bara að koma heim úr skólanum eftir drepleiðinlegan skóladag :p Ætlaði síðan að vera dugleg og skella mér i sporthusið en beilaði feitast á því og ligg núna í leting í ruminu minu ... Dugnaður í manni ekki satt!:D

jæja farin að halda afram að gera ekki rass

adios ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 17:32:36 / svanhvít

bloggerí

Ákvað að henda inn einu stuttu hingað inn, samt ekkert búin að gera síðan að ég skrifaði hér siðast. Svona skemmtilegt líf sem ég lifi, finnst ykkur ekki :$  Ég var semsagt mjög róleg um helgina, stelpurnar voru nú samt eitthvað að tralla á laugardeginum og ég var með þeim aðeins heima hjá Veru, borðuðum Nings og svona. Ég var nú samt farin heim klukkan hálf eittt minnir mig, ég var eitthvað slöpp og þurfti að vinna þarna kl 1 daginn eftir :) Ég vaknaði semsagt þvílikt hress og mætti stundvíslega í vinnuna á meðan aðrar voru líklega heima í þynnku :D 

Annars var ég að ákveða að fara til Spánar í byrjun júni. Spurði mömmu hvort ég mætti ekki fylgja gamla pakkinu og hún vildi endilega að ég tæki Klöru með. Svona þola mamma og pabbi mig haha :D En hún var nú meira en til svo við förum eina viku, nennum varla að vera tvær þar sem Marmaris er seinna um sumarið. Ég á nú ekkert efni á tveimur utanlandsferðum en ég meina maður lifir bara einu sinni!:D svo þetta er bara seinni tíma vandamál. En rosalega verður nú samt erfitt að bíða eftir sumrinu skal ég nú ykkur segja. Ég kann bara ekki að vera spennt því ég verð alltaf yfir mig spennt.



Stelpurnar ætluðu síðan í dag að vera ótrulega góðar og gefa blóð þar sem blóðbílinn var fyrir utan skólann í allan dag. Ég ætlaði nú reyndar ekki að gefa blóð þar sem ég fæ oft og reglulega mígrenisköst en ákvað nú að sleppa tima og fór með þeim þangað. Fór síðan að lesa reglur um hverjir mættu gefa blóð þá er bara greinilegt að ég eigi bara alls ekki að bjarga mannslífum. Það sem hindrar mig víst er að ég er undir 50 kg og búin að gata líkamann innan 6 mánaðar og síðan var eitthvað eitt í viðbót... Já sumum er ekki ætlað að bjarga öðrum! Vona að maður geti þetta nú einhverntiman í framtiðinni, :)

Okei út í allt aðra sálma hérna..... Ég og Ösp vorum um daginn að tala um svona pælingar sem verða til í hausnum á manni og við komumst að þeirri niðurstöðu að við höfum oft báðar pælt í afhverju við erum við! Ef maður hugsar líka afhverju er ég ekki Rósa eða jafnvel ormur eða eitthvað þar um líkt???....  Finnst líka alltaf svo skrýtið að vita þegar ég er að gera eitthvað  þá er fullt að öðru fólki útum allan heim  kannski að gera það sama.. Kannski er maður svona sjálfsumglaður að finnast skrýtið að fólk hugsar og gerir það sama og maður sjálfur. Ég veit ekki hvort þið skiljið alveg hvert ég er að fara en allavega Ösp fattaði mig á endanum!:D. Já skemmtileg pæling ekki satt:P

Jæja hætt með pælinga og farin að gera eitthvað að viti, t.d. læra :p


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 15:54:48 / svanhvít

Handa þér Ösp mín!

 

Já ég var svo ömurleg að svíkja einu sönnu Öspina mína með því að lofa að setja myndirnar´inn í gær og eitthvað stutt blogg en ég sveik það bara illilega!:D En eins gott að þú lifðir þetta af :P 
     

Við stelpurnar skelltum okkur á Janúarball MK. Veltum því aðeins fyrir okkur hvort við ættum að fara þar sem það var svo litil spenna fyrir þessu en þar sem þetta kostaði nú ekki nema 1000 kall og við flestar bara til þá ákvaðum við bara að fara.!Ég sé nú alls ekki eftir því þar sem það var ótrúlega gaman!. Best að búast við að það verði ekkert spes gaman því þá verður það oftast akkurat öfugt.  Við stelpurnar byrjuðum allavega heima hjá Klöru og alveg ótrulega gaman þar.! Misstum okkur á myndavélinni og eg er búin að setja svona nokkrar myndir af því.. En ég ritskoðaði þetta mjög vel og var mörgum myndum sleppt að fara á netið :) Svo stelpur plís ekki byðja mig að taka hina og þessa mynd út.. ég tók þær verstu! ;)Eruð allar sætar, verðið bara að sætta ykkur við það :haha:

Hér er ein mynd af Desperate housewives leikþættinum hjá stelpunum sem ég áttaði mig aldrei almennilega á en flott þetta !
Einnig ´fór sandra á kostum og fór að spila á skeiðar fyrir okkur

 



Einnig tók ég þetta upp á vidjó en kann ekki  að setja það á netið svo ef einhver kann það þá endilega kennið mér það! :D

Á föstudeginum hittumst við nokkrar aftur í Chilli hjá Klöru og ætluðum að hafa kósý spilakvöld þar sem allir voru hálf dauðir eftir þetta ball!:D Enduðum svo bara á að kjafta :)

Á laugardeginum var ég bara að vinna og lenti í leiðinlegum viðskiptavini sem lítur vist soldið stórt á sig því hun er bíkinimodel og hótaði að fara eitthvað með i blöðin og bladdiddiblah! Það sem fólk getur gert sig að fíbli verð eg nú bara að segja! En anyways um kvöldið hittumst við enn og aftur hjá Klöru ( btw takk fyrir afnotin af húsinu Klara:haha!) Enduðum síðan allar niður í bæ og dönsuðum af okkur rassinn til um 6 :) Alveg ótrúlega gaman, var það kannski ekki daginn eftir en það er annað mál:haha:


 



 



Jæja farin að taka til inni hjá mér þar sem það er eins og einhver hafi gert fataárás !

 



                                                    Svanhvítin kveður að sinni ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3